Fífuvellir

Fífuvellir – Jarðvinna og lagnir

Framkvæmdin fól í sér að fjarlægja náttúrugras á fyrirhuguðu vallarstæði ásamt lífrænu undirlagi þess og framkvæma jarðvegsskipti undir nýju yfirborði. Jafnframt fól framkvæmdin í sér lagningu og útvegun lagnaefnis fyrir fráveitulagnir, hitalagnir og vatnslagnir, auk fullnaðarfrágangs vatnsúðarakerfis, snjóbræðslukerfis og rafstrengja í ljósamöstur. Þá var lokið fullnaðarfrágangi yfirborðsundirbyggingar undir gervigras og malbikun nýs kants umhverfis völlinn.
Að auki fól framkvæmdin í sér jarðvinnu, uppsteypu og fullnaðarfrágang tæknirýmis vestan við nýjan völl.

Verkið var unnið árin 2024-2025 og verkkaupi var Kópavogsbær