Starfsstöð SHS, Tunguháls 13 Endurnýjun veðurkápu og tengdur frágangur
Verkið fól í sér endurnýjun á öllu ytra byrði húsnæðis Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins (SHS) að Tunguhálsi 13 í Reykjavík, auk byggingar nýs anddyris á neðri hæð. Flatarmál húsnæðisins var 1.140 m².
Auk endurnýjunar ytra byrði og byggingar anddyris fól verkið meðal annars í sér eftirfarandi þætti:
• Breytingar á gluggum og endurnýjun þeirra.
• Stækkun einnar innkeyrsluhurðar.
• Styrkingar á þakburðarvirki.
• Klæðningar undir loft í bílasal.
Helstu magntölur verksins voru eftirfarandi:
• Þakklæðning: 795 m²
• Styrking þaksperra: 550 m
• Klæðning útveggja: 485 m²
• Steypusögun: 40 m
• Steinsteypa: 13 m³
• Steypustyrktarstál: 505 kg
• Gluggar og útihurðir: 30 stk.
Verkið var unnið árin 2025 -2026 og verkkaupi var SHS