Langholtsvegur – Endurnýjun lagna
Verkið fólst í endurnýjun og nýlagningu veitukerfa, þar á meðal hitaveitulagna, kaldavatnslagna og rafstrengja.
Helstu verkþættir voru uppgröftur lagnaskurða, söndun, lagning röra og rafstrengja, fylling og endanlegur yfirborðsfrágangur. Einnig var unnið við uppsetningu loka, spindla og tengiskáps, aflagningu tengibrunns og lagnastokks ásamt þverun götu.
Á framkvæmdatímanum var umfang verksins aukið með lagningu nýrrar stofnlagnar fyrir kalt vatn.
Verkið var unnið árið 2026 og verkkaupi var Veitur.