Fífuhvammsvegur

Fífuhvammsvegur – Endurnýjun umferðarljósa. Gatnagerð og lagnir

Framkvæmdin fól í sér endurnýjun umferðarljósa á gatnamótum Fífuhvammsvegar og Dalsvegar, auk gatnamóta Fífuhvammsvegar og Reykjanesbrautar beggja vegna Reykjanesbrautar. Einnig voru gerðar breytingar á kantsteinum, miðeyjum og akbrautum. Framkvæmdirnar fólu í sér allt upprif á núverandi yfirborði þar sem breytingar áttu sér stað, alla nauðsynlega jarðvinnu og allan yfirborðsfrágang.

Verkið var unnið árin 2024-2025 og verkkaupi var Kópavogsbær